Sáttur Bubbi sættir sig við að einhver annar hafi eignast peninga hans á silfurfati.

Ja hérna, er Bubbi bara sáttur við að miljónirnar hans hafi farið í vasa þeirra sem eru að hafa fólk að fíflum í spilavíti fjármálageirans?  Mattador-karlarnir hljóta að vera ánægðir með svona auðmýkt og lítillæti.  Þeir treysta væntanlega á að hægt sé að hafa fleiri að fíflum ef viðbrögðin eru ekki hastarlegri en þetta.


mbl.is Allur sparnaðurinn fór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Hann skilur sennilega að þetta var fjárhættuspil sem enginn neyddi hann út í. Ef ég tapa aleigunni í póker, á ég þá að skjóta kvikyndið sem vann?

Hefur svo sem gerst áður.

Villi Asgeirsson, 9.8.2008 kl. 22:34

2 Smámynd: Sigurjón

KOLKRABBANS, SJÓVÁ! Á hvaða öld lifir þú Tryggvi?  Síðast þegar ég vissi átti Björgólfur Eimskip.  Er þér það ljóst?

Sigurjón, 10.8.2008 kl. 05:39

3 Smámynd: Sævar Einarsson

Veistu þú yfir höfuð hvernig kolkrabbi í viðskiptalífi virkar Sigurjón Vilhjálmsson ? á hvaða bronsöld lifir þú spyr ég nú bara. Björgúlfur og hans viðskiptamódel er MIKLU stærri kolkrabbi en sá gamli sem var og hét.

Sævar Einarsson, 10.8.2008 kl. 06:51

4 Smámynd: DanTh

Ef við látum liggja milli hluta hver hefur rétt fyrir sér í þessu þá held ég að upp úr standi sú spurning hvort fjármálageirinn sé ekki dulbúið spilavíti?

Þeir sem leggja fjármuni sína í eitthvert púkk í von um gróða eru væntanlega að spila með þá.  Tapi þeir þeim peningum hafa þeir klárlega verið að spila einhvern áhættuleik sem í mínum skilningi telst fjárhættuspil.

Af þessu plotti hafa fjármálafurstar Glitnis, Kaupþings og Landsbankans, svo einhverjir séu nendir, orðið að miljarðamæringum.   

Mér er ekki kunnugt um annað en fjárhættuspil sé ólögleg starfsemi.

DanTh, 11.8.2008 kl. 09:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

DanTh

DanTh
DanTh

Við sem þjóð berum ekki ábyrgð á svikamyllu útrásarinnar.  Útrásin var verk fjárglæframanna í einkageiranum og spilltra stjórnmálamanna. 

Við vitum hverjir fóru svona með samfélagið, tjónið er hrikalegt, gerum þá persónulega ábyrga fyrir því

kraft@itn.is

Nóv. 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband