Sagan segir að Jóhanni hafi átt að bola út fyrir konu eina.....

Sú saga hefur gengið í þó nokkurn tíma að prestfrúin í Keflavík, sem er fyrrum sýslumaður á Ísafirði, hafi lengi verið inni í plönum Björns með að fá stöðu Jóhanns.  Það að Björn hafi auglýst embættið laust til umsóknar hafi einungis verið liður í lævísu plotti hans til þess að losa sig við Jóhann svo hann kæmi henni að.  Ef þetta er rétt, þá er Björn búinn að skaffa vini sínum prestkall þarna suðurfrá og vinkonu sinni sýslumannsembætti.  Svo er talað um að stjórnsýslan hér á landi sé ekki spillt! 

Væntanlega hafa prestshjónin legið á bæn til almættisins og beðið um gott veður sér til handa í þessu máli.  En sú þekking sem ég hef á biblíulegum boðskap er sú að frúin ætti ekki að taka svo umdeilt starf að sér, þ.e.a.s. þar sem augljós bolabrögð eru viðhöfð við að hrekja Jóhann úr starfi.

En að meinhæðninni slepptri, þá er allt tal Björns um aukið umfang embættisins og breyttar áherslur yfirvarp eitt til þess að réttlæta valdníðslu hans gagnvart Jóhanni.  Staða ríkislögreglustjóra hlýtur allavega að vera orðin slæm ef þessi eru rökin því það embætti hefur vaxið mjög að umfangi og þar með kostnaði síðustu misseri.  Megum við vænta þess að Björn muni auglýsa stöðu ríkislögreglustjóra sem og annarra embætta laus til umsóknar samkvæmt þeirri forskrift sem hann hefur lagt upp með í máli Jóhanns?

 


mbl.is Jóhann er toppmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Arnar Kristinsson

Jahá

 Þetta er eithvað smitandi á Suðurnesjum ; stutt er síðan Presturinn sjálfur í Grindavík kastaði hempunni og bauð sig fram til bæjarstjóraembættisins    Hún er hún er núna bæjarstjóri: 

   Er Kirkjan að lauma sínum mönnum út ú veraldlegar valdastöður svo lítið beri á?  Svo einn góðan veðudag þegar annar hver háttsettur embættismaður verður orðinn fyrrverandi prestur -eða prestsfrú- taki þeir hempurnar fram aftur...  ?

Nei ég segi nú bara svona...  Kannski það vanti orðið svona tilfinnanlega brauð fyrir nýju prestana ? 

Þeir ættu kannski að fara niður að Tjörn , blessaðir...

Pétur Arnar Kristinsson, 29.9.2008 kl. 13:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

DanTh

DanTh
DanTh

Við sem þjóð berum ekki ábyrgð á svikamyllu útrásarinnar.  Útrásin var verk fjárglæframanna í einkageiranum og spilltra stjórnmálamanna. 

Við vitum hverjir fóru svona með samfélagið, tjónið er hrikalegt, gerum þá persónulega ábyrga fyrir því

kraft@itn.is

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband